Þetta er prufa til að athuga hvort athugasemdirnar koma inn núna.
Ef þær koma verð ég mjög hamingjusamur lítill strákur. Ef ekki þá held ég áfram að vera dapur gamall maður.
3.12.09
16.9.09
Pepsi markaðsherferð
Í gær var ég spurður af hverju ég drekk ekki meira Pepsi. Ég hafði ekkert svar. Ég hef drukkið Kók frá því ég var nógu gamall til að þola það eða í 7 ár.
Svo fór ég að hugsa; getur verið að það sé af því "Pepsi" er 2ja atkvæða orð á meðan "Kók" er eitt atkvæði? Í kjölfarið setti ég saman markaðssetningarplan fyrir Pepsi, til að ná yfirburðum á gosmarkaðnum eða amk svo ég skipti yfir.
Planið er í 6 skrefum:
1. Breyta nafni Pepsi í "Pepp". Alltof seinlegt að segja "Pepsí".
2. Gera Pepp drykk sem væri alveg eins og kók á bragðið og fengi nafnið Upp. Samsett nafn yrði Upp-Pepp.
3. Kaupa Stjörnupopp vörumerkið.
4. Kaupa Pipp súkkulaðið.
5. Gera popp með myntu og súkkulaðibragði. Það myndi fá nafnið Pipp-popp.
6. Setja af stað markaðssetningu fyrir bíóhúsin: Upppepp og Pipppopp* á tilboði!
Kók myndi fljúga á hausinn.
*Upppepp = 71% stafa er p. Pipppopp = 75% stafa er p.
3.9.09
30.8.09
27.8.09
23.8.09
10.3.09
Subscribe to:
Comment Feed (RSS)