Pepsi markaðsherferð

Í gær var ég spurður af hverju ég drekk ekki meira Pepsi. Ég hafði ekkert svar. Ég hef drukkið Kók frá því ég var nógu gamall til að þola það eða í 7 ár. Svo fór ég að hugsa; getur verið að það sé af því "Pepsi" er 2ja atkvæða orð á meðan "Kók" er eitt atkvæði? Í kjölfarið setti ég saman markaðssetningarplan fyrir Pepsi, til að ná yfirburðum á gosmarkaðnum eða amk svo ég skipti yfir. Planið er í 6 skrefum: 1. Breyta nafni Pepsi í "Pepp". Alltof seinlegt að segja "Pepsí". 2. Gera Pepp drykk sem væri alveg eins og kók á bragðið og fengi nafnið Upp. Samsett nafn yrði Upp-Pepp. 3. Kaupa Stjörnupopp vörumerkið. 4. Kaupa Pipp súkkulaðið. 5. Gera popp með myntu og súkkulaðibragði. Það myndi fá nafnið Pipp-popp. 6. Setja af stað markaðssetningu fyrir bíóhúsin: Upppepp og Pipppopp* á tilboði! Kók myndi fljúga á hausinn. *Upppepp = 71% stafa er p. Pipppopp = 75% stafa er p.